Hýsing

Þegar kemur að vefhýsingu þarf að tryggja að öryggið sé í fyrirrúmi. Við kappkostum við að halda uppitíma yfir 99% og allir öryggisstaðlar eru í hávegum hafðir hjá okkur. Til að tryggja gögn viðskiptavina notast Internetið við tvöfalda afritun, það innifelur í sér að öll gögn eru spegluð auk þess sem auka afrit er sett á afritunarþjóna í öðrum tækjasal. Þetta er gert til að tryggja öryggi á gögnum viðskiptavina og útrýmir þannig öllum líkum á að gögn tapist.

Internetið hýsir á fjórða hundrað léna bæði erlend og innlend. Internetið ehf. er með samninga við samstarfsaðila erlendis sem gerir okkur kleyft að skrá lén í 80 löndum en meðal þeirra eru öll lönd í Evrópu auk helstu viðskiptalanda Íslands.

Hýsingarsalur Internetsins er eldvarinn vélarsalur þar sem að tryggt er að rakastig og hiti haldist í réttum hlutföllum og fara hvorki yfir né undir hættumörk. Hýsingarsalur Internetsins er tengdur varaafli og ljósleiðara sem tryggja öruggan uppitíma. Afritunartaka er dagleg en einnig eru öll gögn spegluð daglega.

Meðal hýsingarflokka Internetsins:

AT vefhýsing
Flash vefhýsing
DNS vefhýsing
FTP vefhýsing (PHP 4 og 5)
SSL vefhýsing

Þegar kemur að öryggi gagna notast flest vefsvæði við SSL lykla en þeir tryggja að viðkvæm gögn eins og greiðsluupplýsingar séu dulkóðaðar. Ávallt er þessi lausn notuð þegar greiðslukorta upplýsingar eru sendar í gegnum vefsvæði, eins ef tryggja á bakendakerfi eins og til dæmis bókunarkerfi eða önnur kerfi sem halda utan um viðkvæmar upplýsingar. Við bjóðum upp á tvíþætta SSL hýsingu, viðskiptavinir geta valið um sér dulkóðun fyrir vefsvæði sitt eða fengið aðgang að sameiginlegum greiðslulykli.

Internetið notar SSL lykla frá Thawte og býður upp á greiðslugátt í samstarfi við Kortaþjónustuna.