AT Vefumsjón

AT vefhótel
Hýsing
Sérverkefni


AT vefumsjón
Við þróun á AT vefumsýslukerfinu var einfaldleikinn stöðugt hafður að leiðarljósi og nú er lögð áhersla á að uppfæra kerfið reglulega til að það mæti kröfum viðskiptavina okkar.

Stefnan er sú að hafa AT vefumsjón bæði einfalt og auðskiljanlegt til að viðskiptavinurinn geti nýtt kerfið til hins ýtrasta án þess að til þurfti sérstaka tækniþekkingu. Með einfaldleikann í huga er stefna okkar að geta uppfært stærsta hluta vefsíðunnar.

Með AT vefumsjón er hægt að uppfæra allan texta og myndefni, þá er hægt að stjórna öllu efni ásamt því að búa til undirsíður en allt þetta er mögulegt án tækniþekkingar umfram þá að kunna á vafra og textaritil.

AT vefumsjón hefur verið í þróun síðustu þrjú ár af starfsmönnum Internetsins. Kerfið hefur hlotið góðar móttökur hjá viðskiptavinum okkar og er þegar í notkun á yfir 150 innlendum og erlendum vefsíðum. AT vefumsjón er í stöðugri framþróun og eru möguleikar á auka lausnum sem hægt er að tengja við kerfið óendanlegir.

AT vefumsjón - grunnkerfi

Notendakerfi
Fréttakerfi
Myndakerfi

Meðal sérlausna eru:
Flash myndspilari
Flash tónlistarspilari
Tenging við AT vefhótel
Vefverslun
Póstlistakerfi
Spjallkerfi
Kannanakerfi