Img1
Img2
Img3
Img4

AT Webhotel

AT vefhótel er rafræn geymsla gagna og hentar fyrirtækjum sem þurfa að geyma auglýsingar, markaðsefni, myndefni, vörumyndir o.fl. á skipulagðan hátt. AT vefhótel hentar vel til afritunar á mikilvægum gögnum og til að gefa viðskiptavinum aðgang að vissu efni. Með aðgangstýringu AT vefhótels er hægt að takmarka rétt einstaklinga að mismunandi möppum og auk þess má ritverja einstakar skrár ef þörf er á.

Önnur mikilvæg virkni er sú að hægt er að geyma vörulýsingar, strikamerki og aðrar tengdar upplýsingar er fylgja vörum. Það er einnig mögulegt að tengja AT vefhótel við önnur vefkerfi og vefsíður.